Maður er alveg hættur að nenna þessu bloggstússi lengur, en ætla að sýna smá lit og skrifa eitthvað, herma eftir Hjalta félaga og telja upp þá staði sem að maður hefur komið til eftir að maður byrjaði að fljúga. Þá er ég að meina einhverja staði sem að ég hef gist á ekki bara flogið fram og til baka.
Evrópa:
London (allir þekkja þennan stað )
Manchester (ágætis borg, gaman að rölta um hana )
Stokkhólmur (gamli bærinn mjög flottur eins og klipptur út úr mynd frá 17. öld fullt af sérhæfðum búðum og margir veitingastaðir )
Helsinki (ósköp skandinavísk borg, var þar í næstum mánuð þannig að ég var búinn að fá alveg nóg )
Kaupmannahöfn (eins og London lítið um það að segja )
Brussel og Liege (myndi ekki fara þangað í sumarfrí )
Madrid (fín á sumrin en getur orðið drullukalt á veturnar )
Vitoria (inn í miðjum Spán ábyggilega allt í lagi að vera þar en getur líka verið kalt á veturna, ekki langt frá Madrid )
Budapest (var þar í 11 tíma en náði aðeins að skoða mig, gömul og flott væri til í að skoða aftur )
Arona (rétt hjá Milano mjög fallegt og skemmtilegt að vera liggur við stórt vatn. Sumarfrí? já örugglega, nema að hótelherbergin eru þau minnstu sem að ég hef séð )
Krít (semmtilegur og rólegur sumardvalarstaður, samt ekkert of mikið fyrir börn að gera þar )
Antalia (í Tryklandi svona ósköpvenjulegur sumardvalarstaður, strönd og fullt af hótelum )
Afríka:
Mombasa (í Kenýa, Mombasa er ekkert sérstök en ábyggileg gaman að fara í safarí þarna einhverntímann, spilaði golf þarna innan um fullt af öpum, það var soldið sérstakt )
Ouagadugu ( í Burkina Fasu, heitt, heitt, heitt, þegar að við lentum kl 9 að kvöldi var 40°, fátækt og heitt )
Accra (Með skárri borgum í Afríku en Afríka er alltaf Afríka )
Jóhannesarborg (get svo sem lítið um það sagt var þar í 8 tíma )
USA og Kanada:
New York (Gaman en dýrt og troðið af fólki )
Boston (skemmtileg og frekar Evrópsk )
Baltimore (ef þú þarft að versla )
Orlando (jú jú fínt að vera og gott að vera í sumarfríi þar )
Minneapolis (svipað og Baltimore lítið að gera en gott að versla )
San francisco (skemmtilegasta borg Bandaríkjanna falleg og mjög margt að skoða, væri til í að eyða góðum tíma á þessu svæði )
Toronto (júbb því ekki, t.d. hæsti útsýnisturn í heimi er þar )
Hamilton (rétt fyrir utan Toronto skítapláss, lítur út fyrir að þeir sem hafa ekki efni á að búa í Toronto eru þarna, en fékk samt rosa góða steik þar )
Suður Ameríka og Karabíska hafið:
Havana (gaman að hafa komið þangað en þarf ekki að fara aftur )
Varadero (strandbær á Kúbu, allaveganna hvítasta strönd sem að ég hef séð og rosa flott hótel )
Caracas (í Venesúela, ekki fara út á kvöldin, þá verður þér rænt og þá meina ég þér öllum með húð og hári, þannig að maður hefur séð lítið, af því að maður er alltaf inni á hóteli, en fórum á Argentínskt steikhús einusinni og var náttúrulega rosa gott og ódýrt )
Georgetown (í Guyana, ein ljótasta borg sem að ég hef komið til, allt í niðurnýslu, brunnið bío sem á greinilega aldrei að laga, en fórum í mjög skemmtilegar frumskógarferðir þarna )
Santa Cruz (í Bólivíu var þar í rétt 12 tíma en asskoti heitt )
Buenos Aires (var þar í 11 tíma en mikið rosalega er þetta falleg borg, ekkert í líkingu við aðrar borgir í suður ameríku, væri sko alveg til í að koma þarna aftur )
Asía
Phuket (jú það venst bara ágætlega að vera þarna ef maður lærir að leiða hjá sér stöðugt maaaassaaaaageeeee allan daginn )
Dubai (algjör ævintýraheimur ímyndið ykkur að fara á skíði innanhús í 30° stiga hita, ég prófaði það og svo er hægt að versla allan andskotan, gull og gersemar, fölsuð og ófölsuð föt og margt fleira. Svaka uppbygging í gangi t.d. er verið að byggja hæsta hús í heimi þarna og helling af háhýsum og lestarkerfi sem er ekki til staðar núna og þ.a.l. svaka traffík )
Svo hefur maður komið á einhverja aðra staði sem túristi, en þetta er það sem vinnan hefur dregið mig hingað til. þá er bara Ástralía eftir.
Síjú leiter